Björgvin Ploder
Björgvin Ploder er trommari og einn helsti söngvari Sniglabandsins.
rafgítarleikari
Björgvin Ploder er trommari og helsti söngvari Sniglabandsins. Björvin er afar músíkalskur, enda er tónlistin honum í blóð borin, því faðir hans, Hans Ploder, flutti til Íslands frá Austurríki og lék með Sinfóníuhljómsveit Íslands um árabil á fagott.
Björgvin er mikill áhugamaður um mótorhjól og dundar gjarnan við að gera upp einhverjar gamlar gersemar, sem verða gljáandi fínar og gangvissar í höndum hans.