Íslenskar sálarrannsóknir

Íslenskar sálarrannsóknir

Hljóðversplata sem var tekin upp að Núpi í Dýrafirði. Kom út árið 2015

Þessi plata var tekin upp árið 2015 í stúdíói sem Sniglabandið útbjó í gamla barnaskólanum að Núpi í Dýrafirði. Hér voru tekin fyrir nokkur þekkt dægurlög úr íslenskri tónlistarsögu og á þau mátaður búningur sálartónlistar. Allskyns tilraunir voru gerðar með nýtingu þeirra hljóðheima sem þessi gamla skólabygging bjó yfir. Í sumum tilfellum urðu til alveg ný lög. Upptökumaður var Sigurvald Ívar Helgason, en plötuumslagið gerði Villi Warén. Ljósmyndari var Andrés Þórarinsson.

Lög:

Glóðir (Villtir strengir), lag Oddgeir Kristjánsson, texti Loftur Guðmundsson

Betri bíla, lag Sniglabandið, texti Þorsteinn Eggertsson. Sungið af Þú og ég, Jóhanni Helgasyni og Helgu Möller

Til þín, lag og texti Sigurður Guðmundsson

Ég er að tala um þig, lag og texti Jóhann G Jóhannsson

Þú bíður (allavegana) eftir mér, lag og texti Magnús Þór Jónsson. Stefanía Svavarsdóttir syngur

Ég er kominn heim, lag Sniglabandið, texti Jón Sigurðsson. Bergur Þór Ingólfsson syngur.

Álfar, lag og texti Magnús Þór Sigmundsson

Bein leið, lag og texti Kristján Kristjánsson. Stefán Jakobsson syngur

Stúlkan, lag Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir. Stefán Jónsson sem oft er kenndur við hljómsveitina Lúdó syngur.

Tvær stjörnur, lag og texti Magnús Þór Jónsson (Megas)