Björgvin Ploder
Björgvin Ploder er trommari og einn helsti söngvari Sniglabandsins.
trommur
Björgvin er einstaklega hæfileikaríkur tónlistarmaður, enda er honum tónlistin í blóð borin. Faðir hans, Hans Ploder, flutti ungur til Íslands frá Austurríki og lék á fagott í Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Björgvin er einn af fáum trommurum sem fer létt með að leika samtímis hina flóknustu takta á trommur og syngja hástöfum af hjartans lyst. Hann hefur starfað með Sniglabandinu frá því skömmu eftir að það fley var sjósett árið 1985.