Gull á móti sól
Hljóðversplata sem kom út árið 1995.
Gefin út árið 1995. Skúli Gautason tók sér frí frá hljómsveitinn um tíma, en platan var tekin upp í Grjótnámunni og var upptökumaður Nick Cathcart-Jones.
Platan átti að vera einhvers konar framhald á “Þetta stóra svarta” en varð öllu tilraunakenndari. Lagið Rokk var tekið í heild í einni töku inni í eldhúsi Grjótnámunnar og lagið I wanna hold you near me er eins konar bítlagrín. Þarna er einnig spunaverk með hliðarhljómsveitinni Jasstríó Einars Rún, Lestur úr lófa er tekið upp í lifandi flutningi á Gauknum.
Margir góðir gestir komu við sögu, m.a. þær Andrea Gylfadóttir og Berglind Björk Jónasdóttir, Kristján Kristjánsson sem lék á gítar og munnhörpu, Jón Björgvinsson sem barði allskyns slagverksdót, þeir Magne Kvam og Stefán Ómar Jakobsson blésu í básúnur, en Gestur Pálsson í saxófón. Þorleikur Jóhannesson lék hinsvegar á trompet. Helga Kvam lék eins og engill á þverflautu og Máni Svavarsson forritaði alls kyns undratæki sem enginn kann að nefna.
Viðar Bragi Þorsteinsson, hljóðmaður, fékk að troða upp og brýna raust sína auk þeirra Kára Waage og Albert Ágústssonar.
Lög:
Þú getur ekkert, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Sniglabandið
Balsam stúlkan, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Pálma J. Sigurhjartarson
Hí á þig, lag og texti eftir Einar Rúnarsson
Gull á móti sól, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Pálma J. Sigurhjartarson
Fljúgandi, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Björgvin Ploder
Rokk, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Davíð Stefánsson og Pálma J. Sigurhjartarson
I wanna hold you near me, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Pálma J. Sigurhjartarson, Friðþjóf Ísfeld Sigurðsson, Nick Cathcart-Jones,
Einn með þér, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Helgu Kvam
Betra, lag eftir Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, texti eftir Kára Waage
Lestur úr lófa, lag Sniglabandið, texti eftir Einar Rúnarsson
Að opna augun, lag og texti eftir Þorgils Björgvinsson