Getum við ekki látið eins og hálfvitar?

Getum við ekki látið eins og hálfvitar?

Plata sem var tekin upp á tónleikum á Gauki á Stöng. Mikil stuðplata sem var föst í spilaranum hjá heilli kynslóð.

Þessi geisladiskur, sem í daglegu tali var nefndur græna platan, var tekin upp lífs á tveim kvöldum á skemmtistaðnum Gauki á Stöng 1991. Upptökumaður var Jón Skuggi en Ingvar Jónsson var einnig innan handar. Einar Rúnarsson teiknaði plötualbúmið. 

Hér höfðu orðið nokkrar mannabreytingar. Bjarni Bragi hætti og Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson, sem hafði verið hljóðmaður sveitarinnar, tók við bassanum. Baldvin hvarf norður heiðar og Þorgils Björgvinsson gerðist forysturafgígjuleikari. Skúli spilaði á raf- og kassagítar og söng, Björgvin söng og lék á trommur og Einar lék á hljómborð.

Gaukur á Stöng var eitt helsta vígi Sniglabandsins um langt skeið og sóttist bandið einkum eftir að spila þar á sunnudags- og mánudagskvöldum. Á mánudagskvöldum var flestallt sviðslistafólk í fríi og sótti þá gjarnan Gauk á Stöng. Sniglabandið gerði þar allskyns tilraunir og uppákomur og voru þær því vinsælli sem þær voru nýstárlegri og skrýtnari. Eigandi staðarins var Úlfar Þórðarson og sagði hann einhverju sinni að kvöldin með Sniglabandinu væri meira í ætt við revíur en tónleika.  
Þessi plata seldist upp og var mjög vinsæll partýdiskur enda engin grið gefin.

Á plötunni voru 11 lög:

Halló Akureyri

Himpi gimpi gella

Wild thing, man

Hólka polka

Ryksugan á fullu

Úti er alltaf að snjóa

Rudolph

Little Wing

Lagið Wild thing, man náði talsverðum vinsældum í þessari nýstárlegu útgáfu og var gert stórskemmtilegt myndband við það sem Jón Ásgeir Hreinsson leikstýrði. Þar má sjá ýmsa litríka karaktera sem héngu í kring um hljómsveitina á þessum árum.