Rúvtops
Hljóðversplata með lögum sem voru samin fyrir þætti hljómsveitarinnar á RÚV. Kom út árið 2006.
Kom út árið 2006. Platan var tekin upp í Hljóðveri alþýðunnar og upptökumaður var Georg Grundfjörð. Sniglabandið hafði um skeið verið með útvarpsþætti í beinni útsendingu á Rás 2 og boðið síðasta hlustanda sem hringdi inn í hverjum þætti að koma með hráefni í lag, sem bandið síðan samdi fyrir næsta þátt. Það var aðeins misjafnt hvað hlustendur lögðu til laganna, en oft tiltóku þeir hvernig viðlagið átti að byrja og stundum í hvaða tónlistarstíl lagið átti að vera. Þegar lögin voru leikin voru þau oft býsna hrá og hrjúf, en á þessari plötu var farið með nokkur af þessum lögum í stúdíó og þau slípuð til, auk nokkurra brota úr þáttunum.
Lög:
Pabbi minn og pabbi þinn, lag og texti Skúli Gautason
Sólarlag, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Pálmi og Skúli Gautason
Silungurinn, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Skúli Gautason. Söngur: Andrea Gylfadóttir
Hann er grænn og góður, lag og texti Einar Rúnarsson og Þorgils Björgvinsson
Ég veit ekki svarið, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Þorgils Björgvinsson
Sentimetrablús, lag og texti Björgvin Ploder. KK spilar á kassagítar og munnhöpu og syngur ögn.
Epískur ættjarðarsöngur, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Skúli Gautason. Söngur: Anna Sigríður Helgadóttir.
Handbendi djöfulsins, lag Einar Rúnarsson. Söngur: Karl Olgeirsson
Bónerinn, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson
Anarkí á Kanarí, lag Þorgils Björgvinsson, texti Einar Rúnarsson
Sveppurinn, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson
Mayonnaise, lag Þorgils Björgvinsson, texti Einar Rúnarsson
Á hraða snigilsins, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson
Eydís, lag og texti Þorgils Björgvinsson
Á rúntinum, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Skúli Gautason
Gegnum sundið, lag og texti Þorgils Björgvinsson