Ágúst kemur klukkan tvö

Ágúst kemur klukkan tvö

Hljóðversplata sem kom út árið 1997

Er nokkurs konar konseptplata frá 1997 sem fylgir íslenskri  hljómsveit yfir eina helgi. Platan var tekin upp á ýmsum stöðum, en upptökumaður var Tómas M. Tómasson sem einnig handlék bassann. Á plötunni er meistaraverk Ravels Bolero í örlítið breyttri útgáfu. Tómasi fannst vanta millikafla í lagið og samdi einn slíkan, sem er í laginu kynntur af Kára Waage í hlutverki Hjalta Guðgeirssonar.  Gamli E-maxinn sem var fyrst notaður í Himpi gimpi gella er hér í aðalhlutverki, en í stað “ræ” er það “la” í anda Steina Spil. Viðar Bragi kemur hér enn við sögu og ljær rödd sína í vafasömum tilgangi. 

 

Lög:

Bandið, lag eftir Sniglabandið, texti eftir Kára Waage.

Ferðafönk, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Borgarljósin, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Það var lagið, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Blús er leiðinlegt lag, eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Bolero, lag eftir Tómas M. Tómasson og Maurice Ravel, texti eftir Sniglabandið.

Sagan af manninum sem datt af jörðinni, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Með trega skal land byggja, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson og Einar Rúnarsson, texti eftir Kára Waage.

Einföld ást, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson og Björgvin Ploder, texti eftir Kára Waage

Sunnudagur í bænum, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage