Áfram veginn - með meindýr í maganum

Áfram veginn - með meindýr í maganum

Áfram veginn er önnur plata Sniglabandsins. Hún innihélt fjögur lög og var tekin upp í Hljóðrita. Platan kom út 1987.

Plata númer tvö var tekin upp í Hljóðrita síðsumars 1987. Upptökumaður var Kjartan Kjartansson. Í Hljóðrita var ágætur tækjakostur og þarna vorum við komnir í hljóðver þar sem mörg helstu stórvirki íslenskrar tónlistarsögu höfðu verið hljóðrituð. Plötuumslagið var hannað af Ólafi Sveinssyni, myndlistarmanni, #60.

Bandið var eins skipað og á Fjöllin falla í hauga, Stefán Hilmarsson, Sigurður Kristinsson lék á rafgítar, Skúli Gautason lék á raf- og kassagítar og söng, Bjarni Bragi Kjartansson lék á bassa, Einar Rúnarsson á hljómborð og Björgvin Ploder á trommur. Enn var gerð tólf tommu plata, en nú með tveimur lögum á hvorri hlið:

Gunnakaffi, lag og texti eftir Skúla Gautason. Lagið er samið til heiðurs Gunnari Sigurðssyni sem sýndi það fádæma hugrekki í árdaga Sniglanna að hafna kaffinu sem boðið var upp á, einfaldlega af þeirri ástæðu að honum fannst kaffi vont á bragðið. 

Járnið er kalt, lag eftir Valdimar Örn Flygenring og textinn eftir Kristínu Ómarsdóttur. Ýmsir hafa lýst þeirri skoðun sinni að þetta sé einhver besti bifhjólarokktexti sem saminn hafi verið, en hlustendum skal látið eftir að dæma um það. Hinsvegar var mikið lagt upp úr hljóðvinnslunni á þessu lagi. Í intróinu er aðeins látið heyrast bergmálið af bassatrommunni, en bassatromman sjálf kemur ekki inn fyrr en í aðalkaflanum. Stefán syngur lagið af stakri snilld og Kjartan hljóðmaður lék sér svolítið að sampler, sem þá var algjör nýlunda í tónlistarheiminum, einkum með orðið „útþynnt“. Lagið þróast út í eina allsherjar rafgítarsynfóníu í lokin og þó að það hafi verið feidað út í lokin var nóg eftir á upptökunni. 

Margt býr í þokunni. Lagið er eftir Valdimar Örn Flygenring og Skúla Gautason. Textinn er eftir Valdimar, Skúla, Baldvin Ringsted, Bjarna Braga Kjartansson og fleiri. Textinn fjallar um tilfinningu sem flestir bifhjólamenn kannast við sem eitthvað hafa verið að ferðast úti á landi. Veðurfar á Íslandi getur verið rysjótt og ekki alltaf eins og best verður á kosið til reiðar.

Magnað, maður, magnað, lag og texti eftir Sniglabandið. Þetta er léttpoppað mótorhjólalag sem naut nokkurra vinsælda en sumum fannst stinga nokkuð í stúf við annað efni sem Sniglabandið sendi frá sér á þessum tíma.