Fjöllin falla í hauga

Fjöllin falla í hauga

Fjöllin falla í hauga er fyrsta plata Sniglabandsins og kom út árið 1986. Á plötunni voru tvö lög, frumsamið rokklag sem hét 750 cc blús og Álfadans sem var reggae-skotin rokkúgáfa af þekktu íslensku þjóðlagi sem oft er sungið um áramót.

Fjöllin falla í hauga var fyrsta plata Sniglabandsins. Hún var tekin upp í upptökuheimili Geimsteins í Keflavík 1986. Upptökumaður var Rúnar Júlíusson en sérlegur ráðgjafi við trommuupptökur var Matthías M.D. Hemstock. Á plötunni söng Stefán Hilmarsson, Sigurður Kristinsson lék á rafgítar, Skúli Gautason á rafgítar, Bjarni Bragi Kjartansson á bassa, Einar Rúnarsson á hljómborð og Björgvin Ploder á trommur. 

Þetta var tólf tommu plata, 45 snúninga og eitt lag á hvorri hlið. Plötuumslagið prýðir mynd af ömmu Björgvins, Aðalheiði Dagmar Ólafsdóttur. 

Á plötunni eru tvö lög; 

750 cc blues. Lagið er eftir Valdimar Örn Flygenring en textinn eftir Þormar Þorkelsson, #13.

Álfadans, íslenskt þjóðlag í útsetningu Sniglabandsins. Kvæðið er eftir Jón Ólafsson, ritstjóra og alþingismann. Kvæðið er frá 1871 og var fyrst flutt á gamlárskvöld það ár, er stúdentar héldu blysburð. Svo segir í Þjóðólfi 6. janúar 1872:
Á gamlárskvöld kl. 8½ var hér í fyrsta sin „blysburður“ (eðr sem Danir kalla „Fakkeltog“). Stúdentar prestaskólans (nú 15 að tölu) og læknaskólans (5 að tölu) stofnuðu til þess og gengust fyrir því með fyrsta, en lærisveinar skólans gengu og í það, svo blysin urðu yfir 70 að tölu. Flestir höfðu þeir höfuðbúnað og fl. ýmist sem ljós-álfar eðr svart-álfar, kom annar flokkrinn í ljós sunnan frá tjarnarenda, hver maðr með sitt bálanda blys en hinn flokkrinn norðan frá tjarnar-ósnum, mættust svo á miðri tjörninni, þar dönsuðu þeir og sungu álfadans, en að því loknu hélt allur flokkrinn upp til Hólavallar og var staðnæmst á honum sunnanverðum, og fylkt sér og horfði flatvegr fylkingar með öllum blysunum að bænum; en fyrir framan hana víðsvegar voru kveikt „bengölsk“-bál, allavega lit, er lýsti sem hádagr væri. 

Fjöllin falla í hauga fékk býsna góða dóma og var hljómsveitin m.a. valin Bjartasta vonin í ársuppgjöri DV. 

Bifhjólasamtök lýðveldisins afhentu Sniglabandinu stálplötu í tilefni af velgengni plötunnar. 

Lög: 

  1. 750 cc blús
  2. Álfadans
Ethan Walker við sólsetur

Sagan á bak við „Broken Compass“

Broken Compass varð eitt af lykillögum Beyond The Waves. Lagið var samið á tímabili óvissu og breytinga og fjallar um tilfinninguna að halda áfram án þess að vita nákvæmlega hvert ferðalagið leiðir. Ethan Walker lýsti síðar laginu sem einu persónulegasta verki í útgáfuskrá Alliance, þar sem það endurspeglar þær áskoranir og tækifæri sem hljómsveitin stóð frammi fyrir þegar hún fór að vaxa út fyrir staðbundnar rætur sínar.

„Reykjavík Nights“ heiðrar borgina þar sem Alliance var stofnuð. Lagið fangar næturakstur, borgarljós sem speglast í blautum götum og þá tilfinningu möguleika sem einkenndi fyrstu ár sveitarinnar. Þessi sjónræni flutningur sameinar tónlistina andrúmsloftsríku myndefni sem er innblásið af höfuðborg Íslands.