Til hvers þarf maður konur
Þriðja plata Sniglabandsins, tekin upp í Stúdíó Stef og kom út árið 1988.
Þessi fjögurra laga plata var tekin upp í stúdíó Stef í Kópavogi snemma hausts 1988. Upptökumaður var Lárus H. Grímsson. Þegar hér var komið sögu var Stefán hættur að mæta á æfingar, en hann hefur reyndar aldrei hætt formlega í hljómsveitinni. Baldvin Ringsted lék á rafgítar, Skúli lék raf- og kassagítar og söng, Björgvin lék á trommur og söng, Einar lék á hljómborð og Bjarni Bragi sá um bassaleik. Einar Rúnarsson hannaði plötuumslagið og myndu sumir segja að það einkennist af karlrembu og kvenfyrirlitningu, en sú er þó síst af öllu stefna hljómsveitarinnar, heldur er hér verið að vitna í frasa úr frægri sögu, allblautlegri, sem gekk á þessum árum. Sagan sú verður ekki rakin hér.
Platan, sem var tólf tommur, innihélt lögin:
Ruggustóll, lag og texti eftir Skúla Gautason.
Þríhjól, lag efir Skúla Gautason, textinn er eftir hann og Þormar Þorkelsson. Textinn fjallar um draum mótorhjólatöffarans þegar hann er þriggja ára að aldri, að leika sér í sandkassanum, þegar hann verður vitni að því að einhverjir koma á ógurlega töff farartækjum inn á róluvöllinn, nefnilega þríhjólum með sturtupalli.
Hólka polka, lag og texti efir Gunnar Þór Jónsson, sem er betur þekktur sem Gunni klútur. Lagið er hylling til þeirrar uppsveiflu í kántrítónlist sem mátti greina á síðari hluta níunda áratugarins.
Litrarokk, lag og texti eftir Skúla Gautason. Hér fer Baldvin á kostum á rafgítarinn og hafa sumir lýst þeirri skoðun sinni að gítarsólóið í laginu sé eitt þeirra bestu sem hafa verið hljóðrituð á Íslandi, þó það sé fremur stutt. Ásgrímur Sverrisson leikstýrði myndbandi sem gert var við þetta lag og léku Þormar Þorkelsson og Bryndís Petra Bragadóttir þar aðalhlutverkin.