Himpi gimpi gella
Lin gul plata með einu lagi, Himpi gimpi gella, sem fylgdi með tímaritinu Samúel og síðan með Vikunni.
Þessi plata innihélt aðeins þetta eina lag og var framleidd í linu plasti , þannig að það þurfti að leggja hana ofan á aðra hljómplötu og tíkall ofan á miðjuna til að fergja hana. Platan var framleidd í Bandaríkjunum, fallega gul og var dreift með tímaritunum Samúel og Vikunni.
Lagið var tekið upp í Grjótnámunni 1990 og var upptökumaður Nick Cathcart-Jones.
Sigurður „Kollþrykktur“ Kristinsson var kallaður inn til að leika á rafgítar. Hann fékk enga æfingu, það var bara stungið í samband og sett á upptöku. Í laginu fer Einar á kostum með nýtt tæki sem hann hafði eignast, E-max, en það bauð upp á að taka upp eitthvert hljóð og leika síðan hljóðið á allar nótur hljómborðsins. Í þessu lagi söng Einar inn orðið „Ræ“ og er allur sólókaflinn leikinn með þessari tækni.
Lagið er skrýtin og skemmtileg útsetning og staðfærsla á gamla Rolling Stones-slagaranum Honky Tonk Woman. Lagið var sett í valstakt og textinn heimfærður upp á íslenskan raunveruleika. Til að hafa allt löglegt var haft samband við skrifstofur Rolling Stones í Bretlandi til að fá leyfi, en það var nú hreint ekki auðsótt. Einhverjir lögfræðingar kröfðust þess að fá löggilta skjalaþýðendur til að þýða íslensku þýðinguna yfir á ensku. Þegar þeir heyrðu að það ætti að láta söguna gerast á skemmtistöðunum Brabra (sem var gæluheiti á stað sem hét Abracadabra) og Geirsbúð sögðu þeir þvert nei. Þetta ætti að gerast í Memphis og New York og engar refjar. Þeir hótuðu öllu illu og alþjóðlegri málssókn svo bandið lúffaði, fór í stúdíó og skaut inn þessum tveim orðum, eins og glöggt má heyra ef grannt er hlustað.