Sniglabandið leikur á Hammondhátíð á Djúpavogi 2026
Sniglabandið lék á Hammondhátíð á Djúpavogi í apríl 2026. Hljómsveitin vakti mikla hrifningu og hlaut frábærar viðtökur.
Sniglabandið lék á Hammondhátíð á Djúpavogi í lok apríl 2026.
Hljómsveitin var tvöföld í roðinu; fyrir hlé lék hún með Kristjáni Ingimarssyni, heimamanni sem hefur verið ötull lagasmiður og söngvari.
Eftir hlé mætti bandið í fullum herklæðum og lék sitt eigið efni af hjartans lyst.
Ung heimastúlka, Ríkey Elísdóttir, kom á svið og söng lagið um Britney af feikna krafti og öryggi.