Jól, meiri jól
Jólaplata með frumsömdu efni sem var tekin upp í Stúdíó Sýrlandi. Kom út árið 2009.
Eins og nafnið ber með sér er þetta jólaplata sem var tekin upp um hásumar árið 2009. Dregið var fram jólaskraut og eldað hangikjöt með uppstúf til þess að menn kæmust nú í jólaskap við hljóðfærasláttinn. Upptökumaður var Addi 800, Arnþór Örlygsson.
Gestkvæmt var í Stúdíó Sýrlandi en sérstaklega létu til sín taka þeir Eggert Pálsson slagverks- og flautuleikari og Hjörleifur Valsson fiðlungur.
Lög:
Kortér í jól, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson
Jólin koma þegar, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Skúli Gautason
Jólanóttin, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson. Söngur: Andrea Gylfadóttir
Jól, meiri jól, fyrri hluti. Lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Einar Rúnarsson og Kári Waage Hér er lítil jólasaga sögð frá tveimur sjónarhornum. Í fyrri hlutanum er sögumaður ástsæll fjöllistamaður sem verður fyrir ónæði af völdum jólakórs.
Jól meiri jól, seinni hluti, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Kári Waage
Hér er sama saga sögð frá sjónarhóli kórsins, en hann skipuðu, auk félaga í Sniglabandinu, Sara Blandon, Andrea Gylfadóttir, Svafa Arnarsdóttir og Þórhildur Örvarsdóttir
Stóri dagurinn, lag Þorgils Björgvinsson, texti Kári Waage
Keðjusögin, lag og texti Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson
Heim um jólin, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Kári Waage. Söngur: Unnur Birna Björnsdóttir
Fjallasöngur, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Kári Waage
Grænir fingur, lag og texti Einar Rúnarsson
Jólahjól, lag og texti Skúli Gautason. Endurhljóðblöndun á þessu gamla jólalagi sem var tekið upp 1987. Það þurfti að byrja á því að færa upptökurnar af gömlu segulbandsspólunni yfir á stafrænt form. Segulbandið sjálft var orðið dálítið stökkt og viðkvæmt eftir allan þennan tíma og því þurfti að baka spóluna við vægan hita til að mýkja hana upp. Hér er lagið á þeim hraða sem það var tekið upp og hljóma raddirnar því mun eðlilegar. Hér heyrast líka upprunalegi trommuleikurinn hans Björgvins, en í gömlu útgáfunni voru þær aðeins notaðar til að gefa merki fyrir samplaðar raftrommur eins og var mjög í tísku á þeim árum, en sú tíska hefur elst frekar illa.