Þetta stóra svarta

Þetta stóra svarta

Fyrsta hljóðversplata Sniglabandsins í fullri lengd, tekin upp í Stúdíó Sýrlandi. Kom út árið 1993.

Árið 1992 gekk Pálmi J. Sigurhjartarson til liðs við hljómsveitina og er sú liðsskipan sem þarna leikur enn að spila saman, nokkrum árum síðar. Platan var tekin upp í Stúdíó Sýrlandi þar sem þá hét Skúlatún og var upptökumaður Gunnar Smári Helgason. Það var vandað til verka. Félögunum í Sniglabandinu langaði að sýna að þeir væru ekki bara sprelligosar heldur kynnu þeir ýmislegt fyrir sér, bæði sem hljóðfæraleikarar og lagahöfundar. Það var Jón Ásgeir Hreinsson sem átti hugmyndina að titli plötunnar og hannaði hann umslagið og ýmsan söluvarning sem tengdist útgáfunni, m.a. límband sem átti eftir að vekja talsverða athygli. 

Fjöldi tónlistarfólks lagði bandinu lið við gerð þessarar plötu og skal fyrst frægan telja básúnuleikarann Frank Lacy sem var staddur hér á landi til að leika á djasshátíð. Jóhann Hjörleifsson lék á ýmis ásláttarhljóðfæri og Magnús Þór Sigmundsson söng bakraddir. Þar kom saman öflugt brasstríó, það voru þeir Sigurður „Perez“ Jónsson sem blés í saxófón, Þorleikur Jóhannesson á trompet og Stefán Ómar Jakobsson á básúnu. Þau Helga Kvam, Þórdís Arnardóttir og Kári Waage sköpuðu skemmtilegan gleðihljóðheim en að öllum öðrum ólöstuðum var það bakraddatríóið sem hófu þessa plötu til skýjanna. Hér voru kynntar til sögunnar þrjár ungar söngkonur; Kristjana Stefánsdóttir, Hera Björk Þórhallsdóttir og Soffía Stefánsdóttir. 

 

Á plötunni eru þessi lög:

Brennivín er bull, lag og texti eftir Skúla Gautason, flutt af Lögreglukórnum undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar. 

Geðræn sveifla, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Í góðu skapi, lag eftir Steina Tótu og Pálma, texti eftir Björgvin Ploder og Steina Tótu

Éttu úldinn hund, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.

Gott, lag eftir Friðþjóf Í Sigurðsson, texti eftir Kára Waage

Á nálum, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, textinn eftir Sniglabandið

Blæs, lag eftir Skúla Gautason, texti eftir Þórarin Eldjárn

Hægðatregðublús, lag og texti eftir Einar Rúnarsson

Engin miskunn, lag eftir Þorgils Björgvinsson og Skúla Gautason, texti eftir Skúla

Hvern dreymir þig, lag eftir Magnús Þór Sigmundsson, texti eftir Magnús Einarsson