Eyjólfur hressist
Hljóðversplata sem kom út árið 1996
Tekin upp 1996 af Tómasi M. Tómassyni í Stöðinni. Þarna hafði Friðþjófur Í Sigurðsson tekið sér frí frá bassaleik, og í hans stað kom Eiður Arnarsson. Platan einkennist af allnokkru gríni. Þarna bregður rótari sveitarinnar Viðar Bragi Þorsteinsson sér í hlutverk Aðalsteins Þórólfssonar húsvarðar og syngur titillagið. Partístofa íslands er samansafn af leiknum atriðum úr útvarpsþáttum Sniglabandsins. Á plötunni er einnig þjóðhátíðarlag Vestmanneyinga, Saman á ný.
Þarna kemur enn við sögu brasstríóið Sigurður „Perez“ Jónsson á saxófón, Þorleikur Jóhannesson á trompet og Stefán Ómar Jakobsson á básúnu. Kári Waage tók einnig þátt í baksöng.
Útvarp Eyjólfur
Eyjólfur hressist, lag eftir D. Seltzer, texti eftir Baldur Pálmason,
Aðalsteinn á eintali
Bít er mitt blóð, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.
Miðdegissaga
Tröllaköll, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.
Og urðu þau öll að steini
Saman á ný, lag eftir Pálma J. Sigurhjartarson, texti eftir Kára Waage.
Þið munið öll hann Jörund
Hittt, lag eftir Sniglabandið, texti eftir Björgvin Ploder
Partístofa íslands