Vestur

Vestur

Plata sem var tekin upp í PUK-studios í Danmörku. kom út árið 2007.

Sniglabandið fór til Danmerkur í upptökubúðir sumarið 2007. Hið fornfræga Puk-studio nálægt Randers á Jótlandi varð fyrir valinu, stúdíó sem hefur hýst marga af frægustu poppurum sögunnar. Þar var gist, tekið upp og grínast uns vertinn, Peter Iversen kallaði að það væri kominn matur. Og það voru engar smá trakteringar, veislumáltíð á hverju kvöldi. Stúdíóið brann til grunna nokkrum árum síðar, en sem betur fer höfðu allar gullplöturnar og þau frábæru hljóðfæri sem stúdíóið státaði af verið flutt í annað húsnæði. Upptökumaður var Sigurvald Ívar Helgason og sá hann einnig um tölvuforritun. Hönnuður plötuumslagsins var Villi Warén.

Á þessari plötu var enn unnið með þann sjóð laga sem varð til í útvarpsþáttunum vinsælu, en hér var aðeins vinsað úr þannig að betri heildarmynd yrði á plötunni. 

Ásgeir Óskarsson lék hér á ýmis ásláttarhljóðfæri, Leifur Jónsson og Sigrún Jónsdóttir léku á básúnur, Sævar Garðarsson á trompet og Matthías Baldursson á saxófón. 

Lög: 

Blindhæð, lag Einar Rúnarsson, texti Björgvin Ploder

Vestur, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson

Selfoss er, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson

Nú er humar, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson

Britney, lag og texti Einar Rúnarsson. Sungið af Nylon; það voru þær Alma Guðmundsdóttir, Klara Ósk Elíasdóttir og Steinunn Þóra Camilla Sigurðardóttir.

Þröngir skór, lag Þorgils Björgvinsson, texti Björgvin Ploder

Heim, lag og texti Friðþjófur Ísfeld Sigurðsson

Til botns, lag og texti Skúli Gautason

Helena Mjöll, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Sniglabandið

Ballaðan um Bó, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson

Allt sem þarf er ást, lag og texti Pálmi J. Sigurhjartarson og Þorgils Björgvinsson. Í þessu lagi komu börn úr Kór Kársnesskóla og sungu eins og englar undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur.

Aktu eins og maður, lag Pálmi J. Sigurhjartarson, texti Þorgils Björgvinsson. Hér syngur Hjördís Geirsdóttir með Skúla.