25
Þriggja platna albúm sem kom út í tilefni 25 ára afmælis hljómsveitarinnar 2010.
Þetta var þriggja platna albúm með yfirliti yfir feril hljómsveitarinnar frá stofnun hennar árið 1985 til ársins 2010, en talnaglöggir munu átta sig á því að þarna eru liðinn aldarfjórðungur frá fyrsta giggi hljómsveitarinnar í Garðinum, suður með sjó. Hér eru á fyrsta disknum nokkur af þekktari lögum sveitarinnar, á þeim næsta eru ýmis „rarítet“, gamlar upptökur og skrýtilegheit, og á þeim þriðja voru myndbandsupptökur af tónleikum og sjónvarpsþáttum.