Jólastund

Safnplatan Jólastund

Jólahjól, vinsælasta lag Sniglabandsins, var gefið út á safnplötunni Jólastund árið 1987. Lagið skaust beint í efsta sæti vinsældalista.

Þegar hér var komið sögu var ákveðið að endurgera lag eftir Skúla Gautason sem þeir Skúli og Þormar Þorkelsson höfðu reyndar tekið upp árið 1984, ári áður en Sniglabandið var stofnað, og gefið út á mjög sérstakri plötu. Lagið hét Jólahjól og kom út á safnplötunni Jólastund, sem Steinar gáfu út. Lagið var tekið upp í Stúdíó Stemmu í húsnæði Ísbjarnarins á Seltjarnarnesi og var upptökumaður Nick Cathcart-Jones. Hér höfðu orðið mannabreytingar, Sigurður var hættur og í hans stað kom Baldvin B. Ringsted, ættaður að norðan. Stefán söng og sýndi þar hvers hann var megnugur. Einar Rúnarsson fór hamförum á ýmis hljómborð sem hann átti og fann í stúdíóinu. 

Það var Bjarni Bragi Kjartansson sem átti hugmyndina að því að færa lagið í harðari rokkbúning. Til að sannfæra Steinar um að lagið ætti heima á safnplötunni var gerð demó-upptaka í stúdíóinu hjá Júlíusi Agnarssyni í Skólastræti. Júlíus áttaði sig á nauðsyn þess að lagið yrði alvöru rokkari og hvatti Baldvin óspart til dáða, reyndar svo mjög að hann var hræddur um að hann kæmi út úr upptökuklefanum og lemdi sig, en Baldvin er sem kunnugt er friðsemdarmaður og tók þessu öllu vel. 

Það er skemmst frá því að segja að lagið sló algjörlega í gegn um leið og platan kom út og hefur verið eitt vinsælasta jólalag landsins í alla þá áratugi sem liðnir eru síðan. Á köflum var lagið svo mikið spilað að sumir fengu óbeit á því en öðrum finnst ekki koma nein jól nema hlusta á Jólahjól í botni.

Jón Egill Bergþórsson leikstýrði myndbandi við þetta lag sem var tekið upp í sjónvarpssal á Laugavegi 176. Ekki vildi betur til en svo að Skúli varð veðurtepptur fyrir norðan daginn sem myndbandið var tekið og hringdi hann því í bekkjarbróður sinn úr Leiklistarskólanum, Eirík Guðmundsson og fékk hann til að stökkva inn fyrir sig.